Kirkjan
Á þessari síðu finnur þú yfirlit yfir starfsemi kirkjunnar og þær deildir sem hún. Hér er að finna um þau verkefni og þjónustu sem kirk býður upp á, sem hjálpa til við að styrkjaagið og þjónusta meðlimi þess. Við bjóðum þig velkominn til að skoða hvað kirkjan er að og hvernig þú getur tekið þátt.

BARNASTARFIÐ
Meðan á sunnudagssamkomunni stendur, er
barnastarfið í gangi og þar er líf og fjör.
Öll börn eru hjartanlega velkomin.
Kennslan fyrir börnin er mjög fjölbreytt og ættu allir
að geta skemmt sér vel og lært eitthvað nýtt.
Barnastarfið er fyrir krakka á aldrinum 3-12 ára.
Það er blessun að fara með börnin okkar í kirkju
COLORS - ungt fólk
Unga fólkið í Smárakirkju er rótfast í trúnni á Jesú.
Kol.2.7
Verið rótfestir í honum og byggðir á honum, staðfastir í trúnni, eins og yður hefur verið kennt, og auðugir að þakklátsemi.
Colors er unga fólkið í Smárakirkju
Colors snýst um tengsl og uppbyggilegt samfélag kærleika og vináttu.
Allt ungt fólk sem vill gera Jesú að leiðtoga lífsins er velkomið í hópinn.


TÓNLISTARSTARF SMÁRAKIRKJU
Markmið okkar er að ná til sem flestra og að fólk geti kynnst Jesú í gegnum tónlistina okkar.
Við viljum leggja okkar af mörkum til að sjá kirkjuna okkar vaxa og dafna.
Tilgangur okkar er að hvetja, uppörva og þjálfa þá sem Guð hefur kallað í tónlistarþjónustu -
Markmiðið: er að vaxa í ágæti, næmni, auðmýkt og styrk.
Þrá okkar er sú að sjá kirkjuna okkar fulla af fólki sem vill þjóna Guði í anda og í sannleika.
Hefur þú áhuga að vera með ?
Láttu okkur vita hvar áhugi þinn liggur til þátttöku. smarakirkja@smarakirkja.is
Bænastarf kirkjunnar
Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna,
knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða.
Lúkas 11:19
Við höfum trú á bæninni og vitum að Guð svarar bænum.
Fjölmargir í kirkjunni eiga frásögur af sönnum bænasvörum.
Fyrirbæn:
Eftir flestar samkomur í kirkjunni er boðið upp á fyrirbæn fyrir þá sem vilja.
Hægt er að fá fyrirbæn fyrir hverju því sem fólki liggur á hjarta.
Bænastundir:
Bænastundir eru í kirkjunni og þá
er beðið fyrir ýmsum málefnum.
Eftir bænastund er kaffisopi og samfélag.


Strákarnir
Orðskviðirnir 27:17
Járn brýnir járn, og maður brýnir mann.
1.Sam.13:14
"Drottinn hefir leitað sér að manni eftir sínu hjarta"
Þessi hópur á það sameiginlegt að við erum karlmenn.
Við komum saman til að byggjast upp í Guði og eiga góðar stundir, þar sem hvatning er í fyrirrúmi
Fastur hittingur er hálfsmánaðar fresti
Stelpurnar
Markmið hópsins er að hittast í kærleika og með uppbyggingu að leiðarljósi
Orðskv. 31:16-18
Hún hefir augastað á akri og kaupir hann,
af ávexti handa sinna plantar hún víngarð.
Hún gyrðir lendar sínar krafti
og tekur sterklega til armleggjunum.
Hún finnur, að atvinna hennar er arðsöm,
á lampa hennar slokknar eigi um nætur.


Tekmar tæknideild kirkjunnar.
Markmið Tekmar:
Að vera á púlsinum í tæknimálum og þróun þeirra í kirkjunni. Með þessu móti getur þjónustan stuðlað að enn frekari árangri í boðuninni.
Markmiðið er einnig að þjálfa nýtt fólk í tæknivinnslu og sjá til þess að tæknimál kirkjunnar séu í lagi og allt gangi snuðrulaust fyrir sig.
Tæknimenn Tekmars sjá um hljóð- og myndvinnslu fyrir vefinn og samkomur.
Tekmar hefur umsjón með kaupum á tækjum, tölvum og hljóðbúnaði í samráði við önnur svið kirkjunnar.
Tekmar er stoðdeild við aðra þjónustu í kirkjuni þegar kemur
að tæknimálum. Einvalalið tæknimanna Tekmars hafa áratuga reynslu í
hönnun, videovinnslu, hljóðvinnslu og heimasíðugerð.
Jesús sagði við þá: „Farið út um allan heim og prédikið fagnaðarerindið öllu mannkyni. Mark. 16:15
