„Takið til eignar það sem Guð hefur gefið“
- 3 days ago
- 3 min read

„Hversu lengi ætlið þér að vera svo tómlátir, að fara ekki og taka til eignar landið sem Drottinn, Guð feðra yðar, hefur gefið yður?“ — Jósúa 18:3
Þessi orð Jósúa hljóma eins og lifandi spurning inn í hjarta hvers trúaðs manns. Ísrael hafði fengið landið að gjöf. Guð hafði þegar lofað því. En samt voru sjö ættkvíslir sem ekki höfðu tekið landið til eignar sem Guð hafði gefið.
Þessar ættkvíslir fóru sér hægt, voru jafnvel tómlátar. Þær höfðu fengið loforðið, en ekki tekið landið til eignar sem var lofað.
þessi sama spurning hljómar til okkar í dag:
Hversu lengi ætlar þú að bíða með að ganga inn í það sem Guð hefur gefið þér í Kristi?
✦ Gamla testamentið er náttúrlega myndin sem kennir okkur andlegan veruleika
Gamla testamentið er ekki bara saga — það er andlegur lærdómur fyrir okkur:
„Allt þetta varð þeim til fyrirmyndar… og er ritað okkur til viðvörunar.“ 1. Kor. 10:11
Þegar Guð kallaði Ísrael inn í fyrirheitna landið var það náttúrleg mynd af því sem Guð gerir í hjarta mannsins í dag.
Guð sagði:
„Ég hef gefið ykkur landið“ (5. Mós. 1:8)
„Farið og takið það til eignar“ (4. Mós. 33:53)
„Gerið engar málamiðlanir við það sem er þar“ (5. Mós. 7:2–6)
„Blandist ekki þjóðunum“ (Jósúa 23:12–13)
Þetta var ekki grimmd, þetta var vernd.
Því allt sem þeir hefðu leyft að lifa af myndi síðar verða þeim að falli.
Og það var það sem gerðist. Þeir gerðu málamiðlanir, og það varð þeim að snöru (Dómarabók 2:1–3).
"1Engill Drottins kom frá Gilgal til Bókím og mælti: "Ég leiddi yður út af Egyptalandi og færði yður í það land, sem ég sór feðrum yðar, og ég sagði: ,Ég mun aldrei rjúfa sáttmála minn við yður, 2en þér megið ekki gjöra sáttmála við íbúa þessa lands, heldur skuluð þér rífa niður ölturu þeirra.' En þér hafið ekki hlýtt raustu minni. Hví hafið þér gjört þetta? 3Fyrir því segi ég einnig: ,Ég mun ekki stökkva þeim burt undan yður, og þeir munu verða broddar í síðum yðar og guðir þeirra verða yður að tálsnöru.'"
✦ Nýja testamentið: Fullkomna myndin í Kristi
Allt sem var náttúrulegt í Gamla testamentinu verður andlegt í Nýja testamentinu.
Landið = hjarta mannsins
Þjóðirnar = syndin sem vill búa í hjartanu
Hreinsunin = helgun
Loforðið = frelsið í Kristi
Innrásin = að ganga inn í nýtt líf í gnægð
Óvinirnir = holdið, heimurinn og djöfullinn
Kristur gefur okkur:
nýtt hjarta (Esekíel 36:26)
nýjan anda
nýtt líf (2. Kor. 5:17)
andlegan arf (Kól. 1:12)
allt sem til lífs og guðhræðslu þarf (2. Pét. 1:3)
En við þurfum að taka það til eignar.
✦ Engar málamiðlanir við syndina
Rétt eins og Ísrael mátti ekki samlagast þjóðunum í landinu, má kristinn maður ekki samlagast syndinni.
„Látist ekki samlaga yður þessum heimi.“ — Róm. 12:2
„Hvað samleið hefur ljós með myrkri?“ — 2. Kor. 6:14
„Smá súrdeig sýrir allan deigklumpinn.“ — Gal. 5:9
Syndin er ekki eitthvað sem hægt er að geyma í horni. Hún er ekki hlutlaus. Hún leiðir alltaf til dauða (Róm. 6:23).
Þess vegna segir Nýja testamentið:
„Drepið það sem jarðneskt er í yður“ (Kól. 3:5)
„Gamli maðurinn var krossfestur“ (Róm. 6:6)
„Þeir sem tilheyra Kristi hafa krossfest holdið“ (Gal. 5:24)
Þetta er sama mynd og í Jósúa: Hreinsið landið. Ekki í eigin mætti — heldur í krafti Heilags Anda.
✦ Að taka til eignar það sem Kristur hefur gefið
Kristur hefur þegar unnið sigurinn. Hann hefur þegar gefið þér frelsi, náð, heilagleika og nýtt líf.
„Hann hefur blessað oss með öllum andlegum blessunum í Kristi.“ — Ef. 1:3
En þú þarft að:
stíga inn í það
trúa því
lifa því
hafna hinu gamla
gefa Guði allt rýmið
leyfa Heilögum Anda að móta þig
ganga inn í köllun þína (Ef. 4:1)
Þetta er ekki verk sem þú framkvæmir — þetta er samstarf við náðina.
✦ Lokaorð: Kall Guðs til Smárakirkju
Guð er að gera nýtt verk á meðal okkar. Hann kallar okkur til að:
ganga inn í loforðin
taka til eignar arfleifðina
hreinsa hjarta okkar
hafna málamiðlunum
lifa í heilagleika
standa í köllun okkar
elska Guð af öllu hjarta
lifa Kristi, ekki sjálfum okkur
Spurning Jósúa hljómar enn:
„Hversu lengi ætlið þér að vera tómlátir?“
Tíminn er núna. Landið er þitt. Kristur hefur unnið það.
Gakktu inn í það með trú, hlýðni og gleði.
Smárakirkja — við skulum taka til eignar það sem Guð hefur gefið okkur.




Comments