Nýtt boðorð gef ég yður, að þið elskið hvert annað.
- Aug 9, 2021
- 1 min read

Eins og ég hef elskað ykkur, skuluð þið einnig elska hvert annað. Á því munu allir þekkja, að þið eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hvert til annars. (Jóh. 13:34-35)
Þessu boðorði skipti Jesús út fyrir boðorðin 10, sem voru lögmálið, en Hann uppfyllti það fyrir okkur í eitt skipti fyrir öll, eftir að hafa fullkomnað það á krossinum. Við trúum því að Jesús elski okkur án skilyrða af því Hann segir það. Við eigum að elska hvert annað á sama hátt og Hann elskar okkur! Skoðum hjörtu okkar án afláts í þessu. Hvort fólk í kringum okkur sjái að við erum sannir lærisveinar Hans. Þetta er ekki flókið en við erum oft snillingar í að flækja ýms mál með kærleiksleysi.Ef Jesús getur elskað okkur eins og við vorum, erum og verðum, þá eigum við að geta elskað hvert annað, annars myndi Hann ekki fara fram á það. Finnum ekki afsakanir eða blóraböggul fyrir því að elska ekki. Elskum bara eins og Jesús.



Comments